Mótbárum svarað
Stuðningsmenn fóstureyðinga hafa ýmsar mótbárur fram að færa þegar þeir hitta fyrir andstæðinga fóstureyðinga. Hér eru allar þær mótbárur sem ég hef heyrt og lesið, og þeim svarað í örstuttu máli. Það er von mín að þetta geti komið að gagni fyrir lífsverndarsinna við að svara mótbárum, eða jafnvel fengið einhvern sem er fylgjandi fóstureyðingum til að skipta um skoðun.Þessar mótbárur snúst í meginatriðum um móðurina og hennar aðstæður, barnið og svo gagnrýni á lífsverndarfólk, eða andstæðinga fóstureyðinga.
Móðirin:
“Konan hefur óskoraðan umráðarétt yfir eigin líkama.”
Það
gæti verið rétt ef það væri aðeins
hennar eigin líkami sem verið væri að tala um.
Það er hins vegar ekki, heldur er um lítið barn
að ræða, sem er að vaxa inni í líkama
móðurinnar, en er ekki hluti af líkama
móðurinnar. Barnið hefur sitt eigið hjarta sem
slær, sitt eigið blóð í æðum og
sína eigin erfðavísa sem eru ekki þeir
sömu og móðurinnar.
“Ef
fóstureyðingar væru bannaðar, myndu
ólöglegum fóstureyðingum fjölga, og konur
myndu vera í meiri hættu.”
Lög sem eru
sett til verndar lífi barna geta ekki verið gölluð
þótt fólk muni hugsanlega setja sig í
hættu við að brjóta þau lög.
“Fóstureyðing
er einkamál konunar, milli hennar og Guðs - Við getum
ekki þröngvað okkar siðferðisgildum upp á
aðra.”
Það er ekki einkamál
fólks að taka líf annara. Það er mál
alls samfélagsins. Samfélaginu ber að vernda
líf allra sinna þegna og litla barnið er manneskja
eins og við hin.
“Ekki ætti
að þvinga konur til að fæða óvelkomin
börn, sem setja framtíðaráætlanir
þeirra í uppnám, eða sem þær geta
ekki framfleytt.”
Það er hægt að setja
barn í fóstur hjá ættingja, eða gefa
það til ættleiðingar.
“Ef kona
verður þunguð eftir nauðgun, á hún
að eiga rétt á að láta eyða
fóstrinu.”
Hvaða sök á barnið?
Ef það er yfir höfuð rangt að deyða
börn (og það er rangt), hlýtur það sama
að gilda fyrir þetta barn.
“Ef líf
eða heilsu móður stafar hætta af
áframhaldandi meðgöngu og fæðingu, má
eyða fóstrinu.”
Það er
sjálfsagt fyrir móður að gera það sem
nauðsynlegt er til að vernda heilsu sína og líf,
en það verður að gera með því að
lækna meinið en ekki ráðast gegn barninu. Bein
fóstureyðing er aldrei nauðsynleg til að vernda
heilsu móðurinnar.
Barnið:
“Ef barn mun ekki geta lifað eftir fæðingu má láta eyða því.”
Við
getum ekki kveðið upp dauðadóm yfir neinum vegna
veikinda þeirra. Það verður að líta
á þetta barn sömu augum og annað fólk sem
glímir við sjúkdóma.
“Fóstrið er ekki barn á fyrstu vikum meðgöngu, heldur frumuklumpur.”
Það
er ekki rétt. Strax eftir 6 vikur, sem er um það bil
sá tími þegar móðir uppgötvar
að hún er orðin þunguð, er fóstrið
með hjartslátt, blóð rennur í
æðum og heilastarfsemi er mælanleg. Það er
með útlimi, fingur og tær. Það er mannvera
eins og þú! Einu sinni varst þú á
þeim aldri.
“Hvenær hefst líf?
Því er ekki hægt að svara á grunni
læknavísinda. Spurningin er í eðli sínu
siðferðileg. Hægt er að draga mörkin
ýmist við frjóvgun eggsins eða allt fram til
þess að fóstrið er orðið að
lífvænlegu barni.”
Þvi er vel hægt að svara á grunni
læknavísinda. Vísindi geta leitt í
ljós að fósturvísir hefur, frá
getnaði, þau erfðaefni sem hann mun hafa alla ævi,
og þau erfðaefni eru ekki þau sömu og
erfðaefni móðurinnar. Það er vísindaleg
staðreynd. Allt annað er smekkur hvers og eins. Á
smekkur eins einstaklings að ákveða hvenær annar
einstaklingur hefur lífsrétt?
“Á fyrstu vikum
meðgöngunnar á sér stað visst val
náttúrunnar, því u.þ.b.
þriðjungur þeirra fósturvísa, sem
verða til, visna upp og deyja.”
Hlutfallið er um 8% en ekki þriðjungur (33%). Og hvað
þetta kemur málinu við veit ég ekki. Ef einhver
hópur manna á sér takmarkaðar
lífslíkur, þýðir það að
þeir sem eru í þeim hóp hafa ekki
lífsrétt ef einhver ákveður að
það henti sér ekki að þeir fái að
lifa?
Lífverndarsinnar - andstæðingar fóstureyðinga:
“Andstæðingar
fóstureyðinga eru ósamkvæmir sjálfum
sér því þeir eru oft fylgjandi
dauðarefsingum og stríði.”
Andstæðingar fóstureyðinga geta haft mismunandi
skoðanir á einstökum málum, en það
þýðir ekki að málstaðurinn, að vera
á móti fóstureyðingum, sé rangur.
Mín skoðun er að dauðarefsingar séu
aðeins réttlætanlegar ef þær eru eini
kosturinn til að vernda almenning frá hættulegum
glæpamönnum. Stríð er aðeins
réttlætanlegt í örfáum tilfellum, eins
og t.d. til að verja land sitt og þegna fyrir
innrásarmönnum.
Sjá nánar.
“Andstæðingar
fóstureyðinga eru á móti auknum
réttindum kvenna og fylgjandi kvennakúgun.”
Það er ekki rétt. Andstæðingar
fóstureyðinga eru aðeins á móti
fóstureyðingum en hafa engar sérstakar skoðanir
á réttindum kvenna. Lífsverndarsinnar hafa
sjálfsagt mismunandi skoðanir á
kvenréttindabaráttu en það
þýðir ekki að málstaðurinn, að vera
á móti fóstureyðingum, sé rangur.
Það á ekki að vera réttur neins að taka
líf annara.
“Andstæðingar fóstureyðinga hafa myrt starfsmenn fóstureyðingastöðva.”
Það er rétt, en er mjög fátítt.
Fylgismenn fóstureyðinga hafa líka myrt
lífsverndarsinna. Það er líka
fátítt. Það sýnir bara að
fólk getur sýnt af sér mikla grimmd í
garð annara, en ekki að málstaðurinn, að vera
á móti fóstureyðingum, sé rangur.
Lífsverndarhreyfingin er ein friðsamasta
grasrótarhreyfing sögunar og verðskuldar ekki stimpil
vegna illra gjörða örfárra manna.
“Andstæðingar
fóstureyðinga ala á sektarkennd í konum sem
hafa farið í fóstureyðingu og láta
þeim líða illa.”
Fyrst og fremst er
tilgangur lífsverndasinna að telja öðrum konum
hughvarf, bjarga barni þeirra frá dauða og þeim
sjálfum þar með frá að þurfa að
þjást í mörg ár á eftir af
sektarkennd. Vissulega mun sektarkennd einhverra brjótast upp
á yfirborðið en við því getum við
ekkert gert. Aðeins með því að vekja hneykslun
fólks á fóstureyðingum getum við
bundið enda á þær.
“Andstæðingar
fóstureyðinga eru að meirihluta karlmenn sem eiga
auðveldara með að vera á móti
fóstureyðingum en konur.”
Málstaðurinn að vera á móti
fóstureyðingum er jafn réttur hvort sem það
er karlmaður eða kona sem heldur honum fram. Reyndin er
sú að fleiri konur (22%) en karlar (17%) eru fylgjandi
því að fóstureyðingar verði
bannaðar, sbr könnun Gallups frá árinu 2001, Sjá hér.
Sjá einnig svör við rangfærslum í bæklingi um fóstureyðingar.
Ef þú hefur einhver mótrök sem þér finnst ekki vera svarað hér, hvet ég þig til að senda okkur línu.
© Magnús Ingi Sigmundsson
