LÍFSVERND - Lög félagsins
1. Félagið heitir LÍFSVERND. Lífsvernd er rómverskt kaþólskt lífsverndarfélag. Bæði kaþólskum og þeim sem eru ekki kaþólskir er velkomið að ganga í félagið.2. Tilgangur félagsins er að vinna að því að réttur til lífs sé hafður í hávegum á öllum stigum lífs frá getnaði til náttúrulegs dauða. Sérstaklega er áhersla lögð á að öllum fóstureyðingum verði hætt.
3. Tilgangi sínum hyggst félagið ná með
4. Stjórn félagsins skal skipuð að
lágmarki 3 kosnum félagsmönnum, þ.e. formanni,
ritara, gjaldkera; ásamt sálgæslumanni
félagsins sem þarf að vera kaþólskur
prestur.
5. Á árlegum aðalfundi félagsins skal
stjórn gera grein fyrir árangri liðins árs.
6. Árgjald félagsins er 1000 kr. og má
það innheimtast á aðalfundi eða með
gíro-seðli.
7. Hagnaði félagsins skal varið til að vinna málefnum félagsins lið.
8. Ákvörðun um slit félagsins verður
tekin á aðalfundi með atkvæðum tveggja
þriðju hluta félaga og renna þá eigur
félagsins til Kaþólsku kirkjunnar.
9. Grundvallarregla okkar er: Félagsmenn telja að
ófædd börn hafi ófrávíkjanlegan
rétt til lífs frá getnaði og að alls engar
kringumstæður réttlæti beina
fóstureyðingu. Þeir sem eru sammála
þessari grundvallarreglu geta gerst meðlimir í
félaginu ef stjórn félagsins samþykkir
aðild.
10. Fósturdauði sem verður vegna
læknisaðgerðar sem ekki er beint að fóstrinu
sjálfu er ekki talin bein fóstureyðing. Það
á til dæmis við um brottnám eggjaleiðara
með utanlegsfóstri.
11. Félagsmenn geta ekki lýst opinberlega yfir
skoðunum sem eru andstæðar grundvallarreglu
félagsins og jafnframt verið áfram meðlimir
í LÍFSVERND. Ef það er gert skoðast
það sem sjálfkrafa úrsögn úr
félaginu.
12. Ekki má lýsa skoðunum í nafni
félagsins sem eru andstæðar einhverjum kenningum
Kaþólsku kirkjunnar eða hvetja til þess í
nafni félagsins að einhverjar reglur kirkjunnar í
siðferðismálum séu brotnar. Þetta á
til dæmis við um notkun getnaðarvarna.
13. öðrum lífsverndarmönnum skal
sýndur stuðningur og hvatning þótt þeir
séu ekki félagar í LÍFSVERND eða
þótt þeir séu ekki sammála
grundvallarreglu félagsins.
14. öllum lagabreytingum sem takmarka fóstureyðingar er
fagnað þótt þær gangi ekki eins langt og
félagið stefnir að. Félagið má
þó ekki gera þær að markmiði
sínu. Markmiðið verður alltaf að vera að
öllum fóstureyðingum verði hætt.
15. Félagsmenn eru hvattir til að ganga
ávallt með barmmerkið “Dýrmætir
fætur” sem er alþjóðlegt barmmerki
lífsverndarsamtaka. Félagsmenn eru einnig hvattir til
að fara með eftirfarandi bæn fyrir öllum
ófæddum börnum daglega: Himneski Faðir!
16. Ofangreind lög LÍFSVERNDAR hafa hlotið
samþykki biskups Kaþólska biskupsdæmisins
á Íslandi. Hann þarf að samþykkja allar
breytingar á þessum lögum til þess að
þær geta tekið gildi.
17. Þessi lög félagsins hafa verið
samþykkt á stofnfundi félagsins, haldinn í
safnaðarheimili Maríukirkju, Raufarseli 8, Reykjavík,
þann 23. apríl 2004 og samþykkt af Jóhannesi
Mattíasi Gijsen, biskup, þann 24. apríl 2004.
Breytingar og viðbætur við þessi lög
voru samþykktar á aðalfundi félagsins
þann 3. mars 2008
Við biðjum fyrir þeim ófæddu börnum sem
með fóstureyðingu er ætlað að láta
líf sitt í þessari viku.
Bjarga þeim frá dauða.
Breyttu viðhorfum foreldranna og gefðu þeim nýja
von, svo að ekki komi til þessa örvæntingarfulla
verknaðar.
Teldu hughvarf þeim sem framkvæma fóstureyðingar.
Kenndu okkur hvernig bregðast skuli við þessum blóðsúthellingum meðal okkar.
Þess biðjum við fyrir son þinn Jesú Krist. Amen.
