Að gefa barn til ættleiðingar: Leiðbeiningar
Það fyrsta sem kona sem vill láta
ættleiða barnið sitt ætti að gera er að
hringja í Barnavernd í sínu umdæmi.
Síminn hjá Barnavernd Reykjavíkur er t.d. 411 92
00. Þar svarar fólk sem leiðbeinir viðkomandi
áfram, skref fyrir skref. Konan getur hvort sem er haft samband
áður en barnið fæðist eða eftir
fæðinguna. En best er að hafa samband sem fyrst.
-Í samstarfi við konuna er ákveðið hvort
barnið er sótt á fæðingardeildina af t.d.
þeim sem ætla að ættleiða barnið eða
hvort konan fari sjálf með barnið til barnaverndar
yfirvalda eða hvernig fyrirkomulagið verður. Það er best fyrir barnið
ef því fylgja einhverjar upplýsingar s.s. um hver
er faðirin en ef konan vill alls ekki gefa það upp af
einhverjum ástæðum þá skilst mér
að það verði látið kyrrt liggja. Stundum
er heldur ekki hægt að hafa samband við föðurinn
t.d. ef konan verður ófrísk eftir mann sem hún
hittir í fríi erlendis. En yfirleitt er reynt að
leita eftir samþykki föðurins fyrir
ættleiðingu. Ef konan vill ekki að barnið
geti fundið hana síðar á lífsleiðinni
þá þarf að hafa samráð um
það við ættleiðingarforeldrana. Konan getur treyst því
að verðandi foreldrar barnsins hafa verið
rannsökuð af barnaverndarnefnd. Þannig er tryggt eins og
kostur er að barnið fer til hæfra og góðra
foreldra. Eftir að kona hefur
látið ættleiða barnið sitt þá
á hún engan rétt á að fá sendar
myndir eða slíkt en ef hún óskar þess
þá er unnið að því að finna
foreldra sem eru jákvæðir fyrir því.
Oftast eru ættleiðingarforeldrar jákvæðir
fyrir slíku. Á síðustu 3
árum hafa komið upp 2 tilfelli þar sem
íslenskar konur hafa beðið um að barnið
þeirra verði ættleitt. Annað þessara barna
var sótt á fæðingardeildina. Almennt gengur
þetta vel fyrir sig og konan er viss um vilja sinn. Ef kona ákveður að
hún vilji láta ættleiða, á meðan
hún er enn ófrísk, getur Barnavernd
lóðsað henni á félagsráðgjafa
ef hún vill fá stuðning í þessu ferli. Það er fullt af foreldrum
á Íslandi sem vilja ættleiða, það er
ekkert mál að finna góða foreldra fyrir börn
á Íslandi. Því geta konur treyst.
© Melkorka Kristinsdóttir